Athygli er vakin á tveimur mjög fróðlegum og reyndar nátengdum greinum um almyrkva og hringmyrkva á Íslandi, allt frá ármiðöldum (árinu 600) til upphafs þarnæstu aldar (ársins 2200):
- Þórður Arason, 2025: Sólmyrkvar á Íslandi. Náttúrufræðingurinn, 95, 1.- 4. hefti, bls. 56‒69.
- Þórður Arason, 2026: Sólmyrkvar á Íslandi – yfirlit um ritaðar samtímaheimildir. Skýrsla Veðurstofu Íslands, VÍ 2026-003.

Í fyrri greininni ræðir Þórður almennt um sólmyrkva og þau fyrirbæri sem fólk ætti helst að fylgjast með þegar almyrkvi verður á sólu. Auk þess fjallar hann ítarlega um komandi almyrkva, hinn 12. ágúst 2026, og segir sérstaklega frá almyrkvunum 30. júní 1954 og 28. júlí 1851. Þá getur hann um fjölda ritaðra samtímaheimilda um sögulega myrkva á Íslandi. Þeim heimildum eru svo gerð mun ítarlegri skil í seinni greininni.
Það gefur greinum Þórðar sérstakt gildi að þar birtir hann tölvuteiknaðar myndir af brautum allra al- og hringmyrkva á Íslandi á ofangreindu tímabili (600-2200 e.o.t.). Textinn er mjög fróðlegur, skýr og vel fram settur. Greinarnar eru því miklilvægt framlag til sólmyrkvasögu Íslendinga.
P.S. Meira efni fyrir myrkvaáhugamenn: Nokkrar aðgengilegar heimildir um sólmyrkva á íslensku.