Til lesenda

Nýlega þurfti ég að flytja bloggsíðuna mína úr vefkerfi Háskóla Íslands yfir í nýtt lén, raunsaga.is, sem hýst er hjá fyrirtækinu 1984. Við það komu upp tvö vandamál, sem mér hefur ekki enn tekist að leysa að fullu:

(1) Þannig er, að sumar af mínum eldri skrám eru enn geymdar hjá HÍ. Ef smellt er á tengla, þar sem undirliggjandi slóð er  https://notendur.hi.is/~einar/skrárnafn, kemur upp viðvörun: Server Error 404: Page Not Found. Þetta geta lesendur höndlað sjálfir ef þörf krefur, allavega enn sem komið er. Það er gert með því að breyta slóðinni í https://einar.hi.is/skráarnafn.

(2) Hitt vandamálið er öllu snúnara. Þá birtast ekki vissar myndir í eldri færslum og aðrar virðast hafa misst skerpu. Myndirnar eru reyndar allar til staðar í gagnasafni 1984, en við fluttninginn frá HÍ hefur eitthvað farið úrskeiðis hvað sumar slóðir varðar. Ég er hægt og rólega að vinna í því að laga þetta, en kann ekki aðra aðferð en þá, að leita sjálfur að slíkum stöðum í færslunum og setja inn eina og eina mynd í einu. Ég biðst afsökunar á vandræðum sem þetta kann að valda lesendum.

Að lokum minni ég á, að allar athugasemdir varðandi villur og/eða efnistök í bloggfærslum mínum eru vel þegnar.

Einar H. Guðmundsson

Til baka á aðalsíðu: raunsaga.is

This entry was posted in Uncategorized. Bookmark the permalink.