Sovétskar hugmyndir um samband við vitsmunaverur á öðrum hnöttum

Athygli lesenda er hér með vakin á frumlegum rannsóknum vísindasagnfræðingsins Gabríelu Rădulescu á áhugaverðu efni. Í verkum sínum fjallar hún um þróun sovétskrar umræðu um vitsmunalíf á öðrum hnöttum, aðallega eftir að Spútnik var skotið á loft árið 1957, en eins og menn vita markar sá atburður upphaf geimaldar.

Þessi mynd af Gabríelu fylgir viðtali ASEEES News við hana, 15. maí 2026.

Nýjasta grein Gabrielu um efnið birtist í maíhefti tímaritsins Journal for the History of Astronomy:

Greinin vakti talsverða athygli og fljótlega birtist um hana umsögn í fréttabréfi AIP:

Það er ánægjulegt til þess að vita, að grunnurinn að þessum rannsóknum Gabríelu var lagður í meistararitgerð hennar við Námsleið í hugmynda og vísindasögu við Heimspeki-, sagnfræði- og fornleifafræðideild Háskóla Íslands í ársbyrjun 2020. Það var jafnframt fyrsta meistararitgerðin á þeirri námsleið:

Að meistaranáminu loknu fór Gabríela í doktorsnám í vísindasögu við Tækniháskólann í Berlín og lauk því haustið 2024 með ritgerðinni:

Hún hefur síðan verið í tímabundinni Guggenheim nýdoktorsstöðu við hið mikla safn National Air and Space Museum í Washington DC.

.

Til baka á aðalsíðu: raunsaga.is

This entry was posted in Eðlisfræði, Stjörnufræði, Tuttugasta öldin. Bookmark the permalink.